Ýmsir telja að gervigreind og tölvur séu á mörkunum þess að taka yfir heiminn. Raunveruleikinn er hins vegar sá að gervigreind er að breyta vinnuferlum og auka afköst í fyrirtækjum en enn er talsvert í að gervigreind taki að fullu yfir. Í þessu vefvarpi varpar metsöluhöfundurinn Greg Orme ljósi á gervigreind og mannfólkið. Greg Orme skrifaði bókina The Human Edge sem segir frá því hvernig mannfólkið fer að því að lifa af í heimi gervigreindar. Bókin var valin viðskitpabók ársins í Bretlandi.Greg fer yfir fjögur meginatriði í vefvarpinu. 1 Meðvitund: Að auka meðvitund með því að finna þýðingu og fókus í vinnunni.2 Forvitni: Að auka forvitni til að læra um heiminn í kringum okkur á hverjum degi og finna spennandi verkefni og reyna að leysa þau.3 Sköpun: Að æfa sig í skapandi hugsun til að auka líkurnar á að fá innblástur.4 Samvinna: Hvernig hægt er að gera slæmar hugmyndir betri með samvinnu við góða og trausta aðila.