„Það þarf mistök til að vinna. Það þarf mistök til þess að vinna fótboltaleik eða handboltaleik og það er alveg eins í skák. Sem áhorfandi er maður að fylgjast með þessum mistökum og hvernig brugðist er við þeim.“
Skákmeistarinn Andri Feryr Björgvinsson ræðir hér við Skúla B. Geirdal um skákíþróttina. Ef þú ert í einhverjum vafa um hvort skák sé íþrótt eða ekki þá er þetta viðtalið sem að þú þarft að hlusta á!
„Þú ferð ekki endilega í ræktina til þess að æfa upphandleggina sérstaklega. Þetta er mikið meira andlegt sport og þessvegna er áherslan mest á að æfa andlegan styrk. Þú þarft samt líka einbeitingu og úthald og þar kemur sér vel að vera í góðu líkamlegu formi.“
Skák er einstaklega taktísk íþrótt sem byggir að stórum hluta á hæfni í að lesa andstæðinginn og hugsa sína leiki fram í tímann. En það er ekki bara í íþróttum sem að slík hæfni kemur sér vel heldur einnig í lífinu sjálfu.
„Þegar að ég er að tefla þá man ég ekkert eftir símanum. Tíminn bara líður áfram. Ég byrja kannski að tefla klukkan eitt og svo er klukkan allt í einu orðin hálf fjögur en mér líður samt bara eins og ég hafi byrjað fyrir 5 mínútum.“