Tengivagninn

Tengivagninn

Á sýningunni Murr í Listasafni Reykjavíkur er velt upp spurningum um hvað fái listamenn til að vinna endurtekið að sama viðfangsefninu, oft með svipuðum hætti? Hvað fær listamenn til að setja sér reglur og fylgja þeim eftir í þaula, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár eða jafnvel í áratugi? Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, sýningarstjóri Murr, ræðir við Höllu Harðardóttur um sýninguna. Longlegs er fjórða kvikmynd hins bandaríska Oz Perkins, leikstjóra og handritshöfundar. Nicolas Cage fer með eftirminnilega rullu í myndinni, en sá hefur verið á miklu flugi undanfarin ár og tekið að sér fjölda áhugaverðra hlutverka í listamyndum og hrollvekjum ýmis konar. Við heyrum í Mio Storasen Högnasyni, en hann er mikill aðdáandi Cage. Tómas Ævar Ólafsson heldur áfram með sjomlahornið, seríu sem hóf göngu sína í Víðsjá í vor. Í þætti dagsins er það sjomlinn Friedrich Nietzsche sem er til umfjöllunar.

Murr, Nicolas Cage í Longlegs, Nietzsche í sjomlahorniHlustað

13. ágú 2024