Fréttir úr feðraveldinu

Fréttir úr feðraveldinu

Þátturinn Sósíalískir femínistar fara í ferðalag á Marxism festival í London í kvöld en þetta er annar hlutinn. Sýnd verða brot af fyrirlestrum og rætt við Laufeyju Líndal Ólafsdóttur sem fór með þeim Söru og Maríu á ráðstefnuna á dögunum. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.

Marxism festival London 2023 - Annar hlutiHlustað

23. ágú 2023