Fréttir úr feðraveldinu

Fréttir úr feðraveldinu

Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú. Í þættinum ræðir María við Unni Birnu Karlsdóttur sagnfræðing um fóstureyðingalöggjöf en Unnur hélt erindi um ritgerð sína Fóstureyðingar á Íslandi: Íslensk fóstureyðingalöggjöf og áhrif kvennabaráttu hérlendis og erlendis á ákvæði laga um fóstureyðingar þann 7. september s.l í HÍ. Tilefnið var málþing um Rauðsokkuhreyfinguna, Á rauðum sokkum í hálfa öld.

Lög um fóstureyðingarHlustað

13. sep 2023