Fréttir úr feðraveldinu

Fréttir úr feðraveldinu

Í morgun var haldinn blaðamannafundur þar sem Íslandi var tilkynnt að konur muni leggja niður störf þann 24. október næstkomandi. Kvennaverkfallið í ár byggir á því að enn er algjört vanmat á störfum kvenna, launuðum sem ólaunuðum, og enn er ofbeldi gegn konum eins og faraldur sem fær að geisa hömlulaus, kynslóð eftir kynslóð. Í þætti kvöldsins fengum við því til okkar tvær konur sem leggja nú nótt við dag að skipuleggja verkfallið. Hvernig gengur undirbúningurinn og hvað gengur konum til nú næstum fimmtíu árum eftir að konur lögðu fyrst niður störf svo öll heimsbyggðin tók eftir? Gestir kvöldsins eru þær Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB og skipuleggjandi Kvennaverkfalls 2023 og Inga Auðbjörg Straumland, viðburðarstýra Kvennaverkfalls 2023

Kvennaverkfall 2023Hlustað

3. okt 2023