Gestir þáttarins eru Arna Magnea Danks og Halldóra Hafsteinsdóttir trans aðgerðasinnar en þær ræða baráttuna og mikilvægi hennar í sögulegu samhengi og bakslagið sem kynsegin og trans fólk stendur frammi fyrir í dag.
Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur.
Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú