Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið

Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið

Í þessum þætti kynnist þú, kæri Homo sapiens, þáttastjórnendum í gegnum viðfangsefni dagsins sem er TENGING. Við veltum því fyrir okkur hversu mikið og hvað við þurfum að vita um fólk til þess að telja okkur þekkja það eða tengja við það. En til að líka vel við það? Hvernig verður fólk ástfangið og af hverju? 36 Questions for Increasing Closeness, 36 Questions That Lead To Love, 36 Questions That Will Turn Strangers Into Friends - virka þessir listar? Eru þetta allt sömu spurningarnar? Af hverju alltaf 36?Stórar spurningar, heilakrufningar, ljóðahorn og sannleikskorn.

#1 - Þetta fullorðna fólk vill tengjastHlustað

24. jan 2022