Þjóðmál

Þjóðmál

Hlaðvarp Þjóðmála kíkir í heimsókn á Friðheima og þáttur dagsins er tekinn upp í nýrri vínstofu þar á bæ. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um mikilvæga atvinnuuppbyggingu í tómataframleiðslu og ferðaþjónustu og hvaða þýðingu það hefur þegar fólk tekur áhættu og leggur sig fram við að ná árangri. Þá er rætt um minnkandi verðbólgu og hvort ástæða sé fyrir bjartsýni í þeim málum, um veiðiferð Samkeppniseftirlitsins á sjávarútveginn, viðtal við Þorstein Víglundsson sem birtist í ViðskiptaMogganum, evruþráhyggju Viðreisnar, komandi hluthafafund í Íslandsbanka og margt annað í innihaldsríkum þætti.

#149 – Heimsókn í Friðheima – Skál fyrir Guðmundi í Brim – Fasteignastefna FramsóknarHlustað

24. júl 2023