Þjóðmál

Þjóðmál

Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og fyrirlesari, ræða framtíðina í nýjasta hlaðvarpsþætti Þjóðmála. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig framtíðin lítur út og hvað hún beri í skauti sér en við vitum þó að hún kemur. Í þættinum ræðum við almennt um framtíðina, hvort við séum of upptekin af því að hugsa um hana, hvort það skiptir máli hvað við vitum eða vitum ekki, hvernig störf munu þróast, hvernig við metum efnahag og hagsæld, lífslíkur, tækniþróun og margt, margt fleira.

#178 – Björn Berg og Bergur Ebbi rýna inn í framtíðinaHlustað

27. nóv 2023