Þjóðmál

Þjóðmál

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson fara yfir málefni líðandi stundar á helgarvakt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt er um tiltrú á aðgerðir Seðlabankans og stjórnvalda í baráttu við verðbólgu og hvort að það sé rétt að tala um verðbólgu sem gróðabólgu, hvort það sé góð hugmynd að stofna þjóðarsjóð, það hvernig stjórnvöld nota Samkeppniseftirlitið eins og svissneskan vasahníf, um hluthafafund í Íslandsbanka, hvort að ferðaþjónustan sé að draga niður kaupmátt heimilanna og það hvort að heimurinn sé að stikna eða hvort það eigi bara við um gufubaðið hjá Stefáni Einari.

#150 – Verðbólga eða gróðabólga? – Eru margir á Þór Saari vagninum? – Ekki láta hávaðann ráð förHlustað

30. júl 2023