Þú veist betur

Þú veist betur

Er ekki lang skemmtilegast að vaða úr einu í annað, til dæmis úr sjókvíaeldi yfir í drag? Það er að minnsta kosti tilfellið núna og ég vona að þið séuð jafn hrifin af því og ég. Hugsanlega eru þið í sömu stöðu og ég, vitið af eða hafið jafnvel horft á RuPaul’s Drag Race. Svo er auðvitað hægt að fara á sýningar reglulega hér á landi og þið verið svo heppin að sjá eina slíka. En hvað er drag, hver er uppsprettan og hvað gera dragdrottningar við typpið á sér? Ég fékk til mín Sigurð Guðjónsson eða Gógó Starr og við fórum yfir þetta allt, en líka svo margt annað í viðbót

DragHlustað

19. maí 2024