mbl.is

Við þökkum fyrir samfylgdina, umfjölluninni hefur lokið.

Takk fyrir í kvöld!

Steinunn og Sonja þakka fyrir sig í kvöld. Við verðum áfram hér í Liverpool og munum flytja ykkur fréttir af Eurovision í vikunni. Á fimmtudag keppir Diljá Pétursdóttir fyrir hönd Íslands.

Þessi lönd komust áfram í kvöld

Finnland, Noregur og Svíþjóð komust öll áfram á úrslitakvöld Eurovision í kvöld. Fyrra undankvöld Eurovision fór fram í Liverpool og tíu lönd komust áfram af fimmtán.
Meira »

Noregur kemst áfram!!

Alslemma hjá Norðurlöndunum í kvöld.

Serbía kemst áfram!!

Humarinn kemur aftur.

Svíþjóð!!!

Loreen mætir aftur á laugardag.

Portúgal kemst áfram!!

Ísrael kemst áfram

Tékkland kemst áfram!!

Finnland!!

Hér er mikið klappað. Við fáum að sjá meira af Käärijä.

Sviss kemst áfram!!

Moldóva kemst áfram!!

Króatía kemst áfram

Við fáum nærbuxurnar aftur.

Komið að úrslitunum

Þá er komið að því að sjá hvaða tíu lög komast áfram í kvöld.

Nokkur reikistefna var í gær hvernig tilkynna ætti þá sem komast áfram, en stuttu eftir fyrstu æfinguna var hætt við áætlað fyrirkomulag.

Var EBU búið að ákveða að tilkynna úrslitin í anda sjón­varps­söng­keppna á borð við X Factor, Idol og The Voice.

Fól það í sér að í stað þess að flytj­end­ur sitji með öðrum úr hópi sín­um í græna her­berg­inu munu þeir núna standa upp á sviði þegar úr­slit eru til­kynnt.

Ákveðið var þó að hætta við þetta fyrirkomulag eftir fyrsta búningarennslið í gær.

https://www.mbl.is/folk/frettir/2023/05/08/haett_vid_breytingar_a_urslitastund/

Spá Steinunnar fyrir úrslitin

Í engri sérstakri röð.

Finnland

Noregur

Króatía

Ísrael

Svíþjóð

Portúgal

Moldóva

Tékkland

Lettland

Serbía

Spá Sonju fyrir úrslitin

Í engri sérstakri röð.

Finnland

Svíþjóð

Króatía

Ísrael

Noregur

Sviss

Portúgal

Aserbaísjan

Moldóva

Holland