Sendu okkur myndir eða myndskeið úr þínu nærumhverfi á netfrett@mbl.is eða með skilaboðum á Facebook-síðu mbl.is
14.10.
Blaðamannafundi er lokið. Mbl.is mun nú ræða við formenn stjórnarflokkanna
14.10.
14.10.
14.10.
Bjarni tilkynnti að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir myndi taka sæti hans í fjármálaráðuneytinu, en að hann fari í utanríkisráðuneytið.
14.10.
Bjarni segist hafa tekið þá ákvörðun um að segja af sér embætti fjármála- og efnahagsráðherra til að skapa frið um verkefnin í ráðuneytinu.
Máli skipti að árangur náist í stórum verkefnum. Hann hefði viljað sitja áfram í ráðuneytinu.
14.10.
Bjarni heldur áfram og segir að ríkisstjórnarflokkarnir þrír hafi traustan meirihluta sem geti komið málum í gegnum þingið þegar þurfi að taka ákvarðanir með stöðugleika í huga.
14.10.
Bjarni Benediksson tekur til máls og segir atvinnustigið mjög hátt en það hafi verið of mikil spenna sem birtist í verðbólgu og háum vöxtum.
Langvarandi verðbólga og háir vextir muni enda í vanskilum.
„Við höfum tækifæri til að ná tökum á þessari stöðu,“ segir Bjarni og bætir við að vísbendingar séu um að verðbólga sé á niðurleið.
14.10.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tekur til máls og segir enga ástæðu til annars en að klára kjörtímabilið.
„Okkur hlakkar til þess að klára þetta kjörtímabil,“ segir Sigurður Ingi.
14.10.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna á fundinum í Eddu. Katrín og Sigurður hófu ræður sínar á að tala um áskoranir ríkisstjórnarinnar og voru efnahagsmálin þar ofarlega á blaði.
Orðin samstíga og sammála voru framarlega í ræðum þeirra þriggja.
14.10.
Katrín segir að eftir tíðindi þriðjudagsins hafi formenn stjórnarflokkanna ákveðið að setjast niður.
„Við fórum yfir hvað við höfum gert og hvaða sýn við höfum til lengri tíma,“ segir Katrín.
Ástæða fundarins sé að þau vilji tala mjög skýrt.
„Við erum í seinni hálfleik þessa kjörtímabils.“
14.10.
Blaðamannafundur formanna stjórnarflokkanna er hafinn í Eddu, húsi íslenskunnar. Katrín segir að Edda sé valinn sem fundarstaður af því að það endurspegli innviðauppbyggingu ríkisstjórnarinnar.
14.10.
Mest spenna í dag er fyrir því hver taki stól Bjarna Benediktssonar sem fjármálaráðherra. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að Bjarni verði utanríkisráðherra en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra.
14.10.
14.10.
14.10.