Sendu okkur myndir eða myndskeið úr þínu nærumhverfi á frettir@mbl.is eða með skilaboðum á Facebook-síðu mbl.is
8.3.2020
Þá er fundinum lokið. Næsti upplýsingafundur almannavarna verður á sama tíma á morgun, klukkan 14 úr Skógarhlíðinni. Takk fyrir.
8.3.2020
Víðir Reynisson hjá almannavörnum sagði í gær að Emil Hallferðsson og Birkir Bjarnason, landsliðsmenn í fótbolta sem leika á Ítalíu, þyrftu að fara í tveggja vikna sóttkví er þeir koma hingað til lands til að leika með landsliðinu gegn Rúmenum.
Blaðamaður úr sal spyr hvort hið sama gildi um rúmenska leikmenn sem spila á Ítalíu. Fátt um svör.
Leikurinn fer fram 26. mars og því fer hver að verða seinastur að koma til landsins, ætli hann í 14 daga sóttkví fyrir leik.
8.3.2020
Nærri 500 manns eru í sóttkví. Því til viðbótar er vitað um fólk sem dvalið hefur á Ítalíu og er í sjálfskipuðu sóttkví.
Sóttvarnalæknir hvetur alla sem fara í sóttkví til að hafa samband við heilsugæslustöð sína.
8.3.2020
Sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af mögulegu verkfalli BSRB. Hann vonast til að samningar náist sem fyrst; annars gæti botninn dottið úr aðgerðum heilbrigðisyfirvalda og segir að mögulega gæti orðið of seint að reyna að koma þeim í samt horf ef verkfall dregst á langinn.
Landspítalinn hefur þó fengið ýmsar undanþágur vegna verkfallanna.
8.3.2020
Einungis tveir einstaklingar hafa verið lagðir inn á sjúkrahús, en það voru fyrstu tveir mennirnir sem greindust með veiruna hér á landi. Hvorugur þeirra var þó lagður inn vegna veikinda, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
8.3.2020
500 sýni kórónuveirunnar hafa verið rannsökuð. Sýni eru greind tvisvar á dag, og von á fleirum síðar í dag.
8.3.2020
Unnið er að því að koma íþróttaleiðbeiningum og afþreyingu í útvarp og sjónvarp til að stytta fólki í sóttkví stundir. Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, segir að einnig sé unnið að því að koma upp afþreyingu fyrir íbúa. Þá eru ættingjar hvattir til að hafa samband við heimilisgesti rafrænt, til dæmis á FaceTime.
8.3.2020
Ekki er enn vitað hvort kórónuveiran sem gengur hér á landi sé sú sem kom upp í Wuhan í Kína eða stökkbreyting hennar, sem talin er hættulegri.
8.3.2020
Sóttvarnalæknir segir að sýnataka Íslenskrar erfðagreiningar muni vonandi leiða í ljós hve útbreidd veiran er.
Komi í ljós að veiran sé mun útbreiddari en talið hefur verið, gæti það þýtt að sóttkví teljist óþarft enda skili það ekki tilætluðum árangri.
Komi hins vegar í ljós að smitin séu mun færri, gæti það brýnt menn til dáða í að taka sóttkví alvarlega og koma í veg fyrir smit.
8.3.2020
8.3.2020
Tveir af smituðu hjúkrunarfræðingum smituðust með í skíðaferð í Ölpunum. Annar þeirra kom á vakt á gjörgæslu og er gert ráð fyrir að hinir hjúkrunarfræðingarnir hafi smitast þar. Ekki er vitað til þess að sjúklingar hafi smitast, en hjúkrunarfræðingurinn sem um ræðir sinnti ekki sjúklingum er hann kom til vinnu.
8.3.2020
Alma Möller landlæknir segir niðurstöðu Vísindasiðanefdar þá að boð Íslenskrar erfðagreiningar um að annast skimun á kórónuveirunni sé ekki vísindarannsókn heldur skimun. Hún hafi fengið það staðfest frá Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, að hafist verði handa við skimanir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir skimanir Íslenskrar erfðagreiningar munu skipta sköpum. Þá komi í ljós hvort halda þurfi áfram hinum hörðu aðgerðum, sóttkví, eða beita öðrum leiðum.
8.3.2020
Heilbrigðisráðuneytið hefur fyrir töluverðu síðan hafið vinnu við að kanna réttarstöðu starfsmanna með heilbrigðismenntun, sem ekki vinnur í heilbrigðisgeiranum, með það fyrir augum að kalla það til vinnu á Landspítala ef þess reynist þörf.
Sömuleiðis koma starfsmenn einkageirans, og fólk á eftirlaunum til greina.
8.3.2020
Flytja þarf fleiri sjúklinga deildarinnar á gjörgsæsludeild á Hringbraut. Landlæknir segir mikilvægt að fólk neiti sér ekki um heilbrigðisþjónustu.
8.3.2020