Vesturbæingurinn er kokteill sem tryllir

Mjúk og afbragðs rjómakennd lending eftir hátíðirnar. Silfurglasið er frá …
Mjúk og afbragðs rjómakennd lending eftir hátíðirnar. Silfurglasið er frá Hobstar, er nánast óbrjótanlegt og fæst í Bast í Kringlunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Það þrá margir mjúka lendingu eftir öfgarnar sem desembersukkið og janúarkúrarnir kalla eftir. Hér er kominn kokteill sem tilvalið er að skella í í kvöld og skála fyrir gyllta meðalveginum. 

Kokteilinn kalla ég Vesturbæinginn því hann er mín útgáfa af Hvít-Rússa (Whit Russian) og virðist leka einstaklega vel ofan í Vesturbæinga.

Rjómaleginn Vesturbæingur

1 faldur Kahlua-kaffilíkjör 
1 faldur viskí (ég notaði Monkey Shoulder því það hefur hunangs- og vanillukeim)
1 faldur ósæt möndlumjólk 
1 faldur rjómi 

Hristið saman með klaka og toppið með döðlusírópi. Sæll og bless hvað þetta er gott! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert