Gómsæt hollustusprengja frá Hafsteini Ólafssyni

Hvernig er hægt að standast þessa dássemd?
Hvernig er hægt að standast þessa dássemd? Haraldur Jónasson/Hari

Meistarakokkurinn Hafsteinn Ólafsson á Sumac tekur hér þátt í hinni rómuðu áskorun Fimm eða færri. Hér ræður naumhyggjan og hugkvæmni Hafsteins ríkjum og eflaust margir sem munu hoppa hæð sína af gleði yfir þessum bráðholla og gómsæta rétti.

Eins og vera ber skorar Hafsteinn á Garðar Aron Guðbrandsson á Mathúsi Garðarbæjar og við bíðum að sjálfsögðu spennt eftir því hvað hann galdrar fram.
Hafsteinn Ólafsson matreiðslumaður.
Hafsteinn Ólafsson matreiðslumaður. Haraldur Jónasson/Hari

Grilluð rauðrófa, valhnetusalsa og geitaostur

  • 1 stk rauðrófa
  • Olía
  • salt

Rauðrófan er pökkuð inn í álpappír með smá olíu og salti og bökuð á 180°c í 2 klst. Eftir eldun er gott að leyfa aðeins að rjúka af henni áður en hún er skorinn og svo grilluð ( líka hægt að steikja hana á pönnu)

Valhnetu salsa

  • 150 gr. valhnetur
  • 1 stk shallott laukur
  • 1 stk rauður chilli
  • 1 stk sítróna
  • Koriander
  • Salt
  • Pipar
  • hunang
  • Olífuolía

Valhneturnar eru ristaðar í ofni á 150°c í 15 min. Og svo gróf hakkaðar. Shallott laukurinn, chilli og koriander saxað fínt og blandað við valhneturnar  svo er börkurinn og safinn blandað við svo smakkað til með salti, pipar, hunangi og olífuolíu.

Geitaostur

Geitaosturinn er svo rifinn yfir með fínu rifjárni.

Hægt að bera fram sem rétt eða sem meðlæti

Sérlega bragðgóður réttur sem Hafsteinn segir að passi bæði sem …
Sérlega bragðgóður réttur sem Hafsteinn segir að passi bæði sem forréttur og meðlæti. Haraldur Jónasson/Hari
Hafsteinn Ólafsson þykir sérlega flinkur enda Kokkur Íslands 2017.
Hafsteinn Ólafsson þykir sérlega flinkur enda Kokkur Íslands 2017. Haraldur Jónasson/Hari
Geitaosturinn rifinn yfir.
Geitaosturinn rifinn yfir. Haraldur Jónasson/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert