Seiðandi tælenskt fiskikarrí

Seiðandi tælenskt karrí.
Seiðandi tælenskt karrí. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Seiðandi karrí hljómar eins og draumur þessa dagana meðan beðið er eftir sumri. Þessi bragðgóði og skemmtilegi fiskréttur kemur úr smiðju Ragnars Freys Ingvarssonar, en hann er betur þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu.

Seiðandi taílenskt fiskikarrí með brúnum basmati-hrísgrjónum
Fyrir fjóra

  • 1 kg af blönduðum fiski - lax, langa og rækjur
  • 250 g blómkál
  • 1 dós af kókósmjólk
  • 100 ml vatn
  • 2 msk. jómfrúarolía
  • 1 tsk. fiskikraftur
  • 2 msk. rautt taílenskt karrí
  • 1/2 rauður chili pipar
  • 5 cm engifer
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 1/2 rauðlaukur
  • salt og pipar
  • 200 g brún hrísgrjón
  • 1 teningur kjúklingakraftur

Aðferð:

  1. Setjið hrísgrjónin í pott með nógu vatni. Hrærið kjúklingakraftinum saman við. Þegar þau eru tilbúinn - hellið vatninu frá.
  2. Skerið laukinn, chili, engifer og hvítlauk smátt og steikið í jómfrúarolíunni þangað til allt er fallega mjúkt og ilmandi. 
  3. Sneiðið fiskinn niður í munnbitastóra bita og hafið á hliðarlínunni þangað til  sósan er tilbúin.
  4. Blandið kókosmjólkinni og vatninu saman við og hitið að suðu.
  5. Setjið svo karríið saman við. Blandið vandlega saman við ásamt fiskikraftinum. 
  6. Næst er að setja blómkálið saman við sósuna og látið krauma í sjö til tíu mínútur.
  7. Bætið svo fiskinum saman við - hann þarf ekki langan tíma - sjö mínútur eða svo ættu að duga. 
  8. Rétt áður en hrísgrjónin eru tilbúin, bætið þið rækjunum saman við sósuna - þær þurfa ekki nema tvær mínútur eða svo. 
  9. Ef þessi sósa er ekki girnileg - þá veit ég ekki hvað?
  10. Setjið hrísgrjónin á disk og setjið svo rausnarlegan skammt af fiskinum yfir grjónin. Skreytið með kóríander - þ.e.a.s. fyrir þá sem eru ekki með ofnæmi fyrir kóríander.
Prýðisgóður kvöldverður.
Prýðisgóður kvöldverður. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert