5 snargalin eldhús

Við verðum nú að viðurkenna að við erum svolítið svag …
Við verðum nú að viðurkenna að við erum svolítið svag fyrir þessu eldhúsi. En randalínuveggurinn er alveg galinn og líklegur til að valda stöðugustu sjóurum svima, þó fallegur sé. mbl.is/pinterest

Við hér á matarvefnum kunnum vel að meta flippið. Sem betur fer er smekkur fólks misjafn og til eru allskonar eldhús fyrir allskonar fólk. Við rákumst á nokkur eldhús á dögunum sem vöktu upp undrun, gleði, spurningar og allt þar á milli. Hvort sem eftirfarandi eldhús eru snargalin á góðan eða slæman hátt verður hver að ákveða fyrir sig, en öll þessi eldhús eiga það sameiginlegt að vera skemmtilega flippuð og út fyrir rammann.

Þetta eldhús er bara fyrir þá sem þora. Það minnir …
Þetta eldhús er bara fyrir þá sem þora. Það minnir helst á að farið hafi verið hressilega yfir innréttingarnar með yfirstrikunarpenna og það í háglans. mbl.is/hgtvhome
Í þessu magnaða eldhúsi má finna innréttingu sem er í …
Í þessu magnaða eldhúsi má finna innréttingu sem er í senn eldhúseyja og fiskabúr! Þetta finnst okkur alveg magnað og var þeirri spurningu varpað fram hvort hægt væri að geyma lifandi humar í búrinu og fiska svo beint upp í pottinn? Það væri nú eitthvað. mbl.is/RobertKolenik
Hér má sjá litríkt og skemmtilegt eldhús með Suður-Amerísku ívafi. …
Hér má sjá litríkt og skemmtilegt eldhús með Suður-Amerísku ívafi. Það getur nú ekki annað en verið upplífgandi að maula eina enchilada við þetta borð. mbl.is/pinterest
Þetta eldhús er sérdeilis fínt fyrir þá sem hafa smekk …
Þetta eldhús er sérdeilis fínt fyrir þá sem hafa smekk fyrir munstri, en þessi hressilega samsetning myndi þó líklegast fá sjálfa Cath Kidston til að súpa hveljur. mbl.is/pinterest
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert