Það er fátt betra en brakandi ferskt hraun og því er Matarvefurinn afskaplega stoltur af þessari tímamótauppskrift af hraunbita-nammiköku.
Kakan er snareinföld enda hægt að henda henni saman í einum grænum. Við viljum meina að þetta sé lekkera leiðin til að bera fram sælgæti á veisluborðið.
Njótið vel!
Hraunbita-nammikökur
25 stk.
Aðferð:
Bræðið smjör í potti og bætið döðlum út í. Sjóðið saman í 4-5 mín. Bætið púðursykri og kakó í og hitið saman við þangað til döðlurnar eru orðnar mjúkar.
Blandið hraunbitum og lakkrís saman við og þjappið í form 20x20 cm stórt. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hellið því ofan á og kælið allt saman í um það bil 30 mínútur.
Skerið í litla bita, berið fram t.d. með bláberjum og myntu og dustið kakó yfir og njótið.