Dóttir Evu Laufeyjar fékk ævintýralega köku

Ingibjörg Rósa var að vonum ánægð með kökuna enda hreint …
Ingibjörg Rósa var að vonum ánægð með kökuna enda hreint stórkostleg í alla staði. mbl.is/Facebook

Þessi afmæliskaka er þess eðlis að aðrar afmæliskökur geta hreinlega skammast sín... eða þannig. Okkur lék forvitni á að vita hvar Eva fékk þessa dásemdarköku.

Það var litla dóttir hennar, Ingibjörg Rósa, sem fagnaði afmælinu og var að vonum himinsæl með kökuna sem var engin smásmíði. Að auki var hún sérlega glæsileg svo að óhætt er að segja að þetta sé ein glæsilegasta afmæliskaka sem sést hefur hér á landi. 

Það voru snillingarnir í Sætum syndum sem sáu um baksturinn og eins og þeirra er von og vísa var útkoman hreint stórkostleg. Ekki amalegt að fá svona einhyrningstertu... og aumingja við foreldrarnir sem þurfum að leika þetta eftir. 

Sjálf sagði Eva Laufey að þetta væri fallegasta kaka sem hún hefði augum litið og við tökum undir það. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert