Kveður við nýjan tón hjá Le Creuset

Ljóst er að fagurkerar munu slást um nýju pottana.
Ljóst er að fagurkerar munu slást um nýju pottana. mbl.is/Le Creuset

Loksins þegar þú hélst að þú ættir hinn fullkomna Le Creuset-lit og lífið væri nokkuð fullkomið mæta þessir sérfræðingar með nýjan lit á svæðið sem er svo fagur að hann ærir óstöðuga (og afar stöðuga einnig). 

Ekki er beint hægt að tala um lit því þetta er eiginlega splunkuný týpa, svona þannig. Eða áferð. Skuggalega fagur og myndi sóma sér vel í hvaða eldhúsi sem er. 

Ekki er enn ljóst hvort hann kemur til Íslands en við fylgjumst spennt með. 

Ótrúlega vel heppnuð lína (ef línu mætti kalla).
Ótrúlega vel heppnuð lína (ef línu mætti kalla). mbl.is/Le Creuset
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert