Stórtíðindi frá finnska merkinu Iittala

mbl.is/Iittala

Það er óþarfi að kynna Iittala eitthvað frekar en ein þekktasta vörulína þeirra, Ultima Thule, fagnar 50 ára afmæli í ár og af því tilefni er hún framleidd í lit – eitthvað sem aldrei hefur sést áður. Enn og aftur fáum við að sjá þennan dimmbláa lit „rain“ í nýjungum haustsins en hann þykir frekar móðins í hönnunarheiminum í dag.

Vörurnar eru hannaðar af Tapio Wirkkala og eru eitt af vinsælustu verkum hans. Innblástur hans má rekja til bráðnandi ísbjerg á norður Lapplandi. Dramatískt en satt! Þúsundir stunda fóru í að hanna rétta munstrið sem myndi endurspegla glerið þannig að birta og skuggi myndu falla rétt að.

Nýji liturinn heitir „rain“, en blái liturinn er að koma …
Nýji liturinn heitir „rain“, en blái liturinn er að koma víða við í nýjungum haustsins. mbl.is/Iittala
Ultima Thule fagnar 50 ára afmæli í ár og að …
Ultima Thule fagnar 50 ára afmæli í ár og að því tilefni er vörulínan framleidd í fyrsta sinn í lit. mbl.is/Iittala
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert