Er ekki kominn tími til að fríska upp á veggina í eldhúsinu? Gefa þeim nýjan lit eða jafnvel liti sem setja tóninn fyrir stemninguna í rýminu. Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga ef þú kastar þér út í það verkefni að mála vegg í tveimur litum.
- Merktu vel með blýanti hvar litaskiptin eigi að vera. Gott er að nota geislahallamál, en slíkt má fá t.d. í IKEA.
- Byrjið á því að mála ljósari hluta veggjarins, sem þarf að öllum líkindum tvær umferðir. Leyfið málningunni að fara örlítið niður þar sem dökki liturinn á að byrja. Þegar efri hlutinn er orðinn þurr getur þú notað málningarteip til að marka línuna þar sem dökki liturinn mætir þeim ljósari.
- Málið neðri hluta veggjarins með dekkri litnum, það gefur meira jafnvægi en annað.
- Einnig er hægt að veggfóðra annan helminginn og þá myndum við velja efri hlutann og mála jafnvel neðri hlutann í dekkri lit en veggfóðrið er.
- Góða skemmtun og gangi ykkur vel!
Hér eru tveir gráir tónar settir saman og takið eftir gyllta listanum sem setur punktinn yfir i-ið.
mbl.is/Jotun
Það er gott ráð að velja litina úr sömu „litafjölskyldu“ sem tóna vel saman, eins og sjá má hér.
mbl.is/Jotun
Hér er hluti af veggnum í sama lit og innréttingin og verður ákveðin framlenging – kemur mjög vel út.
mbl.is/Jotun