Vissir þú að með einföldum hætti getur þú umbreytt KitchenAid-vélinni þinni? Og það er afskaplega einföld aðferð. Þú þarft ekki að fjárfesta í nýrri vél (ekki að meðalmaðurinn geri það sér til skemmtunar) né heldur að mála hana.
Það eina sem þú þarft að gera er að fjárfesta í nýrri skál.
Hér erum við að tala um úrval fallegra skála sem framleiddar eru af KitchenAid og smellpassa á vélarnar.
Skálarnar kosta rúmar tíu þúsund krónur (í Bandaríkjunum) og eru yfirleitt framleiddar í takmörkuðu upplagi.