Þóra Sigurðardóttir
Stundum, bara stundum, rekst ég á eldhús sem eru svo vel heppnuð að mig langar helst að hrópa húrra. Við erum ekki að tala um fullkomnun enda vitum við að það væri ekkert gaman. En góðar hugmyndir og snjallar útfærslur er eitthvað sem er svo gaman að skoða og þegar fólk þorir að vera aðeins öðruvísi, þá er hátíð!
Þetta forkunnarfagra eldhús er stórkostlegt. Takið eftir því hvernig innréttingin er máluð í sama lit og veggirnir. Kemur brjálæðisleg vel út og er vel þess virði að leika eftir.
Fleiri myndir af íbúðinni er hægt að nálgast HÉR.
Heimild: Nordic Design