Iittala kynnir lit ársins

Liturinn Sea blue er litur ársins 2019 hjá Iittala. Í Finnlandi eru þúsundir vatna ásamt því sem það hefur langar strendur sem snúa að Eystrasaltinu. Finnar finna því ákveðna tenginu við vatnið ásamt því sem það er lífsviðurværi margra. Vatn eða sumarhús við sjóinn er nauðsynlegur hluti finnska sumarsins, en flest sumarfrí snúast að miklu leyti um vatn, svo sem sundferðir, gufuböð, veiði, kanósiglingar, róður og fleira. Liturinn Sea blue vísar í sólríkan dag í fallegum eyjaklasa og kvöldsund eftir notalegt gufubað. Einstaklega afslappandi!

Róandi en jafnframt frískandi litir sem stuðla að aukinni vellíðan einkenna árið 2019. Blár er þekktur víða um heim sem vinsælasti liturinn, en liturinn er sérstaklega vinsæll í glösum, karöflum og vösum vegna tengingarinnar við vatn. Liturinn Sea blue hefur verið í framleiðslu frá því í byrjun ársins 2000 en í ár verða fjölmargar nýjar vörur framleiddar í þessum frísklega lit. Þar má helst nefna Kastehelmi-glas, disk skál og krukku, Aino Aalto-glös, Kartio-karöflu, Aalto-vasa í nokkrum stærðum og Kaasa-kertastjakann.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert