Sumir kjúklingaréttir eru einfaldlega svo geggjaðir að vandamálin heyra sögunni til og ofurflóknir hlutir verða skyndilega hreint ekki svo flóknir.
Það er Linda Ben sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem klikkar ekki.
Djúsí kjúklinga alfredo pasta
- 400 g penne pasta
- 4 stk. ferskar Ali-kjúklingabringur
- 2 msk. ólífuolía
- 4 hvítlauksgeirar
- 1 rauð paprika
- 1 ½ msk. hveiti
- 350 ml vatn
- 2 tsk. kjúklingakraftur
- 250 ml matreiðslurjómi
- 100 g parmesan-ostur
- Salt og pipar
- ca. 10 stk. aspas
- 1 lítill brokkolíhaus
- 1-2 dl rifinn ostur
Aðferð:
- Byrjað er á því að krydda kjúklingabringurnar með góðri kjúklingakryddblöndu og baka þær í ofni í u.þ.b. 35 mín. eða þar til þær eru eldaðar í gegn.
- Á meðan bringurnar eru í ofninum setjið vatn í tvo potta, einn til að sjóða pastað í og annan til að sjóða aspas og brokkolí í. Bætið salti í þá báða en olíu bara í þann sem þið munið sjóða pastað í. Þegar suðan er komin upp bætið pastanu í pottinn en aspas og brokkolí í hinn pottinn. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum en grænmetið í u.þ.b. 10 mín.
- Setjið olíu á pönnu, skerið hvítlauksgeirana smátt niður og bætið út á meðalheita pönnuna. Skerið papriku niður í litla bita og bætið henni líka á pönnuna. Hveitið er sett á pönnuna og blandað saman við allt, steikið hveitið í nokkrar mín. til að ná mesta hveitibragðinu úr. Bætið því næst vatni, krafti og matreiðslurjóma út á pönnuna og hrærið saman. Rífið parmesan-ostinn út á og blandið saman. Smakkið til með salti og pipar.
- Setjið pastað í frekar stórt eldfast mót, setjið grænmetið út á, skerið kjúklingabringurnar í bita og bætið þeim út á, hellið sósunni yfir og dreifið rifnum osti yfir. Bakið í ofni í u.þ.b. 15 mín. eða þar til osturinn byrjar að brúnast.