Lauren Saylor er snillingurinn á bak við síðuna afabulousfete.com. Hún kemur frá sólríku Kaliforníu og er ein af þeim sem hafa látið drauma sína rætast með því að gera nákvæmlega það sem henni finnst skemmtilegast að gera og það sem nærir hana.
Instagram-síðan hennar er falleg og einkennist af ljósum myndum – flestar af letterpress-hönnun hennar, litríkum blómum ásamt mat og drykk. Þessi síða er tilvalin til að „elta“ ef áhugi er fyrir slíku myndefni.
Lauren er bloggari og hönnuður – hún hannar boðskort og kort af ýmsum gerðum og er einnig stofnandi The Creative Library og starfar þar ásamt öflugu teymi. Hugmyndin á bak við það fyrirtæki er að selja myndir eða template til bloggara, verslunareigenda, áhrifavalda, blómaverslana o.fl. sem vantar uppfyllingarefni til að halda síðunum sínum og samfélagsmiðlum gangandi. Því eins og flestir vita þá erum við öll að keppast við tímann og þá er afar vel þegið að geta sótt efni inn á svokallað gallerí og málið er leyst.
Þegar Lauren er ekki á skrifstofunni sinni má finna hana nálægt ströndinni í Palm Springs með glas af prosecco í slökun með manninum sínum og hundum. Eða að tína saman í fallegan blómvönd en á blómum hefur hún mikið dálæti.