Eitt deig – tvær gerðir af smákökum

Hversu mikil snilld er að gera eitt deig en fá …
Hversu mikil snilld er að gera eitt deig en fá 2 sortir af smákökum út úr því? mbl.is/Spisbedre.dk

Hér kynnum við til leiks eina þá mestu snilld sem hugsast getur í smákökubakstri – eitt deig en tvær gerðir af smákökum. Smákökudeig sem þú bragðbætir að eigin óskum og setur svo í frysti. Þá áttu alltaf til deig fyrir nýbakaðar smákökur með kaffinu.

Eitt deig – tvær smákökur (ca. 35 stk.)

  • 350 g hveiti
  • 200 g sykur
  • 1 vanillustöng
  • ½ tsk. hjartarsalt
  • 250 g smjör
  • 1 egg

Möndlu- og appelsínubragð:

  • 50 g möndlur
  • 1 appelsína
  • 35 g perlusykur

Súkkulaði- og heslihnetubragð:

  • 2 msk. kakó
  • 50 g dökkt súkkulaði
  • 50 g heslihnetur

Aðferð:

  1. Blandið hveiti og sykri saman. Skafið kornin úr vanillustönginni og blandið saman við hveitið ásamt hjartarsalti.
  2. Hnoðið smjörinu saman við og setjið loks eggið út í deigið.

Möndlu og appelsínubragð:

  1. Skiptið deiginu til helminga. Rúllið öðrum helmingnum upp í pulsu og rúllið deiginu upp úr blöndu af fínt hökkuðum möndlum, rifnum appelsínuberki og perlusykri.

Súkkulaði og heslihnetubragð:

  1. Blandið kakó, súkkulaði og grófhökkuðum hnetum saman og hnoðið því saman við deigið áður en þið rúllið því upp sem pulsu.

Bakstur:

  1. Geymið deigið í ísskáp í 2-3 tíma og skerið það svo niður í þunnar skífur.
  2. Leggið skífurnar á bökunarplötu á bökunarpappír og bakið í 7-8 mínútur við 200°C þar til gylltar og stökkar. Kælið á rist.
  3. Ef þú vilt geyma smákökudeigið getur þú rúllað því upp sem pulsu og pakkað inn í plastfilmu. Setjið í poka og inn í frysti. Takið deigið út og skerið í þunnar skífur (vel hægt að gera það á meðan deigið er hálf frosið).
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert