Fasteignasalinn Leif Swanson hefur dundað sér við það í hjáverkum að taka myndir af fasteignum sem honum þykja sérlega ljótar og þá ekki síst eldhúsum. Okkur lék forvitni á að vita hvernig eldhús urðu fyrir valinu og það verður að viðurkennast að þau eru kannski ekki áferðarfalleg en með smá ást og umhyggju gætu þau orðið stórglæsileg.
Mónótónísk eldhús eru í tísku þessi dægrin en því miður er appelsínugulur það ekki. Að minnsta kosti ekki í eldhúsum. Það mætti vel mála eldhúsið í örum lit og skipta um skápahöldur... og kannski borðplötu líka.
mbl.is/Leif Swanson
Þessar flísar eru hressandi en fá sín hreint ekki notið. Gólfflísarnar taka of mikið frá veggflísunum og litasamsetningin er fremur dapurleg.
mbl.is/Leif Swanson
Þetta er reyndar frekar flott eldhús. Það mætti mála skápana, skipta um eldavél og borðplötu og höldur og þá væri þetta eldhús algjör æði.
mbl.is/Leif Swanson
Hér er heilmagt að gerast. Ef að loftið yrði málað svart og sett eyja yrði eldhúsið svakalegt!
mbl.is/Leif Swanson