Mexíkóveisla sem mun breyta lífi þínu

Þessi réttur er upp á tíu og meira til!
Þessi réttur er upp á tíu og meira til! mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Þessar ljúffengu enchiladas eru fljótlegar í undirbúningi og algjört lostæti. Uppskriftin er úr smiðju Hildar Rutar Ingimarsdóttur sem er matgæðingur með meiru og höfundur bókarinnar Avocado sem kom út hér um árið.  

Hildur segir: „Það er mjög sniðugt að nota afgangsnautahakk, eins og ég gerði, en annars tekur enga stund að útbúa það. Svo er stór plús að rétturinn er barnvænn, svona réttir slá alltaf í gegn hjá sjö ára syni mínum. Ég elska að gera mat sem öllum finnst góður á heimilinu.“ Þessi dásemdarréttur er himnasæla fyrir bragðlaukana þegar hann er borinn fram með ostasósu, avókadóstöppu og sýrðum rjóma ásamt nachosflögum.

Dásamlega góðar enchiladas (fyrir 2-3)

  • 6 tortillur
  • 400-500 g nautahakk (eða veganhakk)
  • 1 lítil krukka salsasósa
  • cayennepipar
  • kummín
  • paprikukrydd
  • salt og pipar
  • rjómaostur
  • 1/2 blaðlaukur, smátt skorinn
  • 2-3 msk. sýrður rjómi
  • chili explosion
  • 2-3 tómatar, smátt skornir
  • rifinn cheddarostur
  • rifinn gratínostur eða annar rifinn ostur (má sleppa)
  • ferskur kóríander

Avókadóstappa:

  • 2 avókadó (eða meira)
  • 1 msk. límónusafi
  • salt og pipar

Ostasósa:

  • 2 msk. smjör
  • 1 msk. hveiti
  • 2 dl nýmjólk
  • 5 dl rifinn cheddarostur
  • cayennepipar
  • smá salt

Aðferð:

  1. Steikið hakkið á pönnu, kryddið með cayennepipar, kummíni, paprikukryddi, salti og pipar og hrærið salsasósunni saman við. Ég mæli með að steikja meira hakk og nota það daginn eftir í annan rétt eða nota hakkið, sem var eldað daginn áður, í þennan rétt.
  2. Smyrjið tortillurnar með rjómaosti. Dreifið blaðlauknum yfir og því næst nautahakki eftir smekk (mér finnst ekki gott að hafa of mikið).
  3. Rúllið upp tortillunum og raðið í eldfast smurt form. Smyrjið yfir þær sýrðum rjóma og kryddið með chili explosion. Dreifið tómötunum yfir og stráið rifnum osti yfir allt saman. Bakið í 15-17 mínútur við 190°C eða þar til osturinn er orðinn gylltur.
  4. Toppið enchiladas með ostasósu, avókadóstöppu og ferskum kóríander.

Avókadóstappa:

  1. Stappið avókadó og keistið safa úr límónu yfir. Saltið og piprið.

Ostasósa:

  1. Bræðið smjörið í pott við vægan hita. Hrærið hveitinu saman við og blandið því næst mjólkinni út í. Hrærið þar til blandan hefur þykknað og bætið cheddarostinum við. Hrærið þar til osturinn er bráðinn og kryddið eftir smekk.
Það jafnast fátt við tortillakökur með avocadostöppu og ostasósu.
Það jafnast fátt við tortillakökur með avocadostöppu og ostasósu. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
Hildur Rut stendur á bak við þennan dásamlega rétt sem …
Hildur Rut stendur á bak við þennan dásamlega rétt sem kitlar bragðlaukana. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert