Pastarétturinn sem Ítalir elska

Þennan geggjaða pastarétt verða allir að prófa.
Þennan geggjaða pastarétt verða allir að prófa. mbl.is/Colombus Leth

Þessi pastaréttur er þekktur undir nafninu „boscaiola“ í ítölskum kokkabókum. Hann inniheldur sveppi, hvítvín og hvítlauk og finnst í ótal útfærslum.

Alveg klikkaður pastaréttur (fyrir 6)

  • 400 g pasta
  • 3 stór hvítlauksrif
  • ½ rautt chili
  • 4 msk. steinselja, smátt söxuð
  • 4 msk. ólífuolía
  • 200 g sveppir
  • 300 g salsiccia eða önnur sterk pylsa
  • 1 dl hvítvín
  • 1 dl rjómi
  • sjávarsalt og pipar
  • 50 g parmesan

Skraut:

  • ½ rautt chili
  • 4 msk. fersk basilika, gróf söxuð

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum þar til al dente og hellið vatninu frá.
  2. Skerið hvítlaukinn í þunnar skífur og saxið chili og steinselju smátt.
  3. Hitið olíu í stórum potti og ristið hvítlaukinn, chili og steinselju. Skerið sveppina í 4 hluta og ristið á pönnunni. Skerið pylsuna í þykkar sneiðar og bætið út í.
  4. Hellið hvítvíni út í pottinn og látið sjóða. Bætið þá rjómanum út í og látið malla í smá stund. Bætið þá pastanu saman við og veltið upp úr blöndunni. Takið af hellunni og kryddið með parmesan, salti og pipar.
  5. Berið fram og dreifið basilikublöðum yfir ásamt smátt söxuðu chili.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert