Fimmtudagsfreisting Kolbrúnar Pálínu

Kolbrún Pálína er mikill sælkeri og veit fátt skemmtilegra en …
Kolbrún Pálína er mikill sælkeri og veit fátt skemmtilegra en að elda fyrir vini og vandamenn. mbl.is/

Fyrsti þátturinn af ÁST verður frumsýndur í Sjónvarpi Símans í kvöld og af því tilefni leitaði matarvefurinn til fagurkerans og sælkerans Kolbrúnar Pálínu Helgadóttur, annars umsjónarmanns þáttanna og verkefnastýru hjá Árvakri, eftir hugmynd að fullkomnum mat þetta fimmtudagskvöldið yfir sjónvarpinu.

ÁST er ný þáttaröð í umsjón þeirra Kolbrúnar Pálínu Helgadóttur og Kristborgar Bóelar Steindórsdóttur sem fjalla um allt sem viðkemur ástinni, ástarsorg, skilnuðum og fleira. Þættirnir, sem Kolbrún segir afar mannbætandi fyrir margra hluta sakir, eru framleiddir hjá Sagafilm. Þáttunum er leikstýrt af Hauki Björgvinssyni og Helgi Jóhannsson framleiddi.
Kolbrún segir vegferðina hafa verið mjög lærdómsríka enda búin að vera á kafi í að rannsaka allt sem viðkemur málefninu núna í á annað ár. „Það er mjög sérstök tilfinning að sjá hugmyndina sína verða að veruleika eftir svona langa leið. Hún hefur breyst og þróast mikið á leiðinni enda unnin af geggjuðu teymi. Með aðstoð hugrakkra viðmælenda og hæfileikaríks fólk er útkoman dásamlega heiðarlegt og einlægt sjónvarp.“

Kolbrún skellti í stórskemmtilega takópönnu sem hentar fyrir alla fjölskylduna. Rétturinn er þess eðlis að það má leika sér í allar áttir með að blanda saman hráefnum eftir smekk og nota það sem til er í ísskápnum. „Ég geri hana í mildara lagi þegar ég elda hana fyrir litla fólkið en gef svo aðeins í með chili og hvítlauk þegar um stærra fólkið er að ræða.“

Taco er frábær fimmtudagsmatur enda bæði bragðgott og auðvelt í …
Taco er frábær fimmtudagsmatur enda bæði bragðgott og auðvelt í matreiðslu. mbl.is/Kolbrún Pálína

Fljótleg og fjölskylduvæn takópanna

  • Olía
  • 1 pakki hakk
  • 1 pakki takókrydd frá Old El Paso
  • hvítlaukur
  • chili
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • ½-1 dós nýrnabaunir
  • maísbaunir eftir smekk
  • ostur

Aðferð: Steikið hvítlauk og chili upp úr olíu á pönnu. Bætið því næst hakkinu við og steikið vel og kryddið með takókryddi.

Hellið tómötum og baunum út í hakkið og leyfið því að malla aðeins.

Að endingu er rifinn ostur settur yfir hakkblönduna og honum leyft að bráðna aðeins.

Ef pannan er falleg er skemmtilegt að bera blönduna fram í henni, nú eða í fallegu fati.

Að þessi sinni notaðist ég við fajitas-pönnukökur en einnig er skemmtilegt að nota takóskeljar með þessum rétti.

Tómatsalsa
  • 1 box kirsuberjatómatar
  • 1 hvítlauksrif
  • chili eftir smekk
  • fetaostur
  • salt og pipar
  • kóríander

Aðferð: Skerið tómatana í grófa bita. Skerið hvítlauk og chili smátt. Blandið þessu saman og stappið svolítinn fetaost saman við. Salt, pipar og kóríander eftir smekk.

Gvakamóle
  • Þrjú vel þroskuð avókadó
  • límóna
  • olía
  • salt og pipar

Aðferð: Stappið avókadó með gaffli og kreistið safann vel úr límónunni yfir. Salt og pipar eftir smekk. Allt það meðlæti sem hugurinn girnist eða leynist inni í ísskáp; rúkóla, mangó, paprika, gúrka, ananas eða annað ferskt og gott.

Sýrður rjómi er nauðsynlegur með þessum mat sem og góð takósósa. Og að sjálfsögðu nachos-flögur. Fyrir þá allra hressustu má svo bæta við sriracha-piparsósu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert