Hinn fullkomni haustréttur

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér erum við með dásamlega útfærslu á hinu klassíska Beef Bourguignon eða Búrgúndí kássu eins og hún gæti kallast á íslensku. Það er engin önnur en Berglind Hreiðars á Gotterí.is sem á þessa útgáfu en hún segist sérlega hrifin af öllum þeim mat sem hægt sé að elda í einum potti.

„Nauta „brisket” spurði ég um í Kjötbúðinni og náðu þeir í það bak við fyrir mig og skáru það í gúllasbita. Það má þó einnig nota annað nautakjöt í þennan rétt sem skorið er niður eða hefðbundið nautagúllas.“

Beef bourguignon útfærsla

  • 1 kg nauta brisket (brjóstvöðvi)
  • 4 msk. hveiti
  • 1 stk. laukur
  • 4 stk. hvítlauksrif
  • 125 g kastaníusveppir
  • 600 g gulrætur
  • 500 g kartöflur
  • 1 dós niðursoðnir tómatar frá Cirio
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 2 tsk. Worcestershire sósa
  • 600 ml nautasoð
  • 200 ml rauðvín (Brolio Chianti Classic passaði fullkomlega)
  • 3 msk. púðursykur
  • 2 msk. fljótandi nautakraftur
  • 2 stk. lárviðarlauf
  • ólífuolía
  • salt, pipar og steikarkrydd eftir smekk

Aðferð:

  1. Saxið niður lauk og hvítlauk og skerið niður sveppina.
  2. Skerið kartöflur og gulrætur í munnstóra bita og leggið til hliðar.
  3. Steikið kjötið upp úr olíu og kryddið til með salti, pipar og steikarkryddi, brúnið vel og takið af pönnunni.
  4. Bætið meiri olíu á pönnuna og steikið lauk, hvítlauk og sveppi þar til mýkist. Bætið þá gulrótum á pönnuna og kryddið aðeins meira.
  5. Stráið hveitinu yfir grænmetið og hellið næst soðinu, niðursoðnu tómötunum, tómatpúrrunni, rauðvíninu, worcestershire sósunni, sykri, krafti og lárviðarlaufum saman við og hrærið vel (það gæti þurft að bæta aðeins meira hveiti við ef þið viljið hafa sósuna þykkari eða soði ef þið viljið hana þynnri).
  6. Nú mega kartöflurnar fara út í pottinn og svo má lækka hitann og leyfa þessu að hægeldast í um 3 klukkustundir. Mikilvægt er að smakka réttinn til og krydda, þykkja, þynna eftir þörfum. Það má alveg setja meira/minna af krafti og sykri svo gott er að smakka þetta til þangað til þetta verður eftir ykkar höfði.
  7. Gott er að hafa gott brauð, t.d. naan-brauð með réttinum.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert