Eggjakaka sem þú verður að smakka

Sjúklega góð eggjakaka með brokkolí og beikoni.
Sjúklega góð eggjakaka með brokkolí og beikoni. mbl.is/Stine Christiansen

Þegar þú vilt hafa eitthvað einfalt en svakalega gott í matinn, þá er það þessi fjölskylduklassík sem slær alltaf í gegn. Eggjakaka með beikoni og brokkolíi, borin fram með góðu brauði.

Eggjakaka sem þú verður að smakka

  • ½ brokkolí
  • 3 blaðlaukar
  • 200 g beikon
  • ólífuolía
  • 1 msk. smjör, til steikingar
  • steinselja
  • 7 egg
  • 1,5 dl rjómi
  • 100 g rifinn mozzarella
  • 1 tsk. þurrkað rósmarín
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn áí200°C.
  2. Skerið brokkolí og beikon í bita og skerið blaðlaukinn í ½ cm bita.
  3. Hitið olíu á pönnu og byrjið á að steikja beikonið í um 5 mínútur. Leggið það því næst til hliðar á eldhúspappír og leyfið fitunni að leka af. Hellið fitunni af pönnunni og þurrkið létt yfir.
  4. Hitið sömu pönnuna með smjöri og steikið blaðlaukinn á meðalhita þar til hann er mjúkur, um 5 mínútur.
  5. Dreifið brokkolí, blaðlauk og beikoni í eldfast mót. Pískið egg, rjóma, mozzarella og saxaða steinselju saman í skál og kryddið með rósmaríni, salti og pipar. Hellið eggjamassanum yfir grænmetið í eldfasta mótinu og setjið inn í ofn. Bakið í 20-25 mínútur þar til massinn er fastur í sér og gylltur á toppnum.
  6. Saxið steinselju og dreifið yfir eggjakökuna þegar hún er borin fram með góðu brauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert