Yndisaukandi bananabollur með súkkulaði

Bananabollur með súkkulaði ætti að vera á dagskrá alla daga.
Bananabollur með súkkulaði ætti að vera á dagskrá alla daga. mbl.is/Colourbox

Dúnamjúkar og einstaklega bragðgóðar bananabollur sem krakkarnir (og fullorðnir) munu elska. Hér er súkkulaði saxað út í deigið en það má einnig bæta við muldum hnetum ef þess óskast.

Yndisaukandi bananabollur með súkkulaði

  • 25 g ger
  • 2,5 dl volgt vatn
  • 1 dl hreint jógúrt
  • 2 msk. hunang
  • 2 msk. bráðið smjör
  • 1 tsk. salt
  • 2 egg
  • 3 þroskaðir bananar
  • 9 dl hveiti
  • 3 dl haframjöl
  • 100 g dökkt súkkulaði

Aðferð:

  1. Leysið gerið upp í vatninu.
  2. Setjið hunang, salt, bráðið smjör, jógúrt og eitt egg í skálina og hrærið vel saman við gerið.
  3. Bætið haframjóli og hveiti saman við og hrærið. Deigið á að vera þykkt og klístrað.
  4. Maukið bananana og saxið súkkulaðið gróflega og komið því varlega út í deigið.
  5. Látið deigið hefast við stofuhita í 1 tíma eða yfir nótt inn í ísskáp.
  6. Skiptið deiginu upp í 12 hluta með skeið og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu. Látið hefast í 30 mínútur.
  7. Penslið bollurnar með eggi.
  8. Bakið í ofni við 220°C í 20 mínútur eða þar til gylltar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert