Brauðrétturinn sem sló í gegn

Ljósmynd/María Gomez

Brauðréttur eru burðarstólpi í íslenskri matarhefð og góður brauðréttur er gulli betri. Flóknara er það nú ekki. Hér erum við með eina dásemd úr smiðju Maríu Gomez á Paz.is sem þið eigið eftir að elska enda ekki annað hægt miðað við innihaldið.

María segir mjög mikilvægt að klikka ekki á því að gera sinnepssósuna með því án hennar sé rétturinn ekki nærri því eins góður.

„Raggi maðurinn minn sér alltaf um að gera réttinn, en þetta er uppskrift sem kemur frá Rósu mömmu hans. Hann er svo ómótstæðilega góður og klárast alltaf upp í hvert skipti sem við höfum hann," segir María um þennan dásemdar rétt.

Brauðrétturinn sem sló í gegn

  • ¾ fransbrauð
  • 1 dós sýrður rjómi
  • karrý eftir smekk
  • 3-4 msk. mayones
  • 1 dós ferskjur í dós
  • 1 dós sveppir
  • 1 bréf af beikon
  • 1 bréf skinka
  • 1 camembert, brie eða kastala (hvaða hvítmygluostur sem er)
  • 1 poki af rifnum osti
  • papríkuduft til að strá yfir

Aðferð :

  1. Rífið brauð í eldfast mót og hellið safanum af sveppunum og ferskjunum yfir
  2. Gerið sósu úr 1 dós af sýrðum, 3-4 msk mayonesi og karrý eftir smekk
  3. Hellið svo sósunni yfir brauðið í mótinu
  4. Skerið sveppina aðeins niður, skinkuna og beikonið og steikjið á pönnu
  5. Setjið það svo yfir brauðið með sósunni í eldfasta mótið
  6. Skerið næst niður ferskjur í sneiðar og raðið fallega yfir allt saman
  7. Skerið svo ostinn í þunnar sneiðar líka
  8. Raðið ostinum svo jafnt yfir allt saman í mótinu og stráið að lokum rifna ostinum yfir og kryddið með smá papríkudufti.
  9. Bakið svo í ofni á 200°C í 30-35 mínútur

Sinnepssósa með réttinum (má alls ekki sleppa og á að bera fram með til hliðar)

  • 1 dós af sýrðum með graslauk (þessi í grænu dósunum)
  • 2 msk. hunang
  • 3 msk. sætt sinnep

Aðferð:

Þessu er öllu hrært saman og ef ykkur finnst vanta meiri sætu eða sinnep þá bara bætið þið við og smakkið til eftir smekk.

Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert