Djúsí kjúklingaborgari með brie og rauðkálshrásalati

Hér ber að líta á alveg stórkostlega bragðgóðan kjúklingaborgara með …
Hér ber að líta á alveg stórkostlega bragðgóðan kjúklingaborgara með hrásalati. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Kjúklingaborgari af allra bestu gerð er mættur á borðið! Við lofum að þið hafið ekki smakkað þá betri en þennan, en hann kemur úr eldhúsinu hennar Hildar Rutar sem segir; „þið verðið svo sannarlega ekki svikin af þessum kjúklingaborgara. Þessi er svo ljúffengur og djúsí. Panko raspið og brie osturinn passa einstaklega vel saman. Rauðkálshrásalatið setur svo punktinn yfir i-ið. En það er oft gert á mínu heimili, hvort sem það er með borgara eða taco.“

Djúsí kjúklingaborgari með brie og rauðkálshrásalati (fyrir 2)

• 1-2 kjúklingabringur
• Panko brauðraspur (fæst t.d. Í Hagkaup)
• 1 egg
• Salt og pipar
• Krydd eftir smekk
• Smjör
• 2 brioche hamborgarabrauð
• Brie ostur
• Tómatur
• Avocado

Rauðkálshrásalat:

1. 5 dl ferskt rauðkál
2. 3 msk. Hellmanns majónes
3. 1½ msk jalapeno úr krukku

Aðferð:

Pískið egg í skál. Hrærið saman brauðraspi og kryddi á disk eða skál.

Skerið kjúklingabringurnar í tvennt langsum þannig að úr verða tvær þunnar sneiðar.

Veltið þeim upp úr egginu og síðan raspinum.

Skerið smjör í litla teninga og dreifið í botninn á eldföstu móti. Leggið kjúklinginn ofan á smjörið og dreifið svo fleiri smjörteninga ofan á hann.

Bakið í u.þ.b. 30 mínútur við 190°C eða þar til kjúklingurinn er næstum fulleldaður.

Skerið brie í sneiðar og dreifið þeim ofan á bringurnar. Setjið bringurnar aftur inn í ofn og bakið í 5-8 mínútur, þar til osturinn er bráðnaður.

Hitið hamborgarabrauðin í ofni og dreifið hrásalatinu á botninn. Setjið kjúkling, tómata, avocado og lokið borgaranum

Rauðkálshrásalat: Blandið saman majónesi, jalapeno og salti með töfrasprota eða matvinnsluvél. Skerið rauðkálið í ræmur og blandið saman við jalapenomajónesið með skeið.

mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert