Öðruvísi pítsa sem allir ættu að elska

Pizzakvöldinu er reddað með þessum gæða pizzum og dressingu.
Pizzakvöldinu er reddað með þessum gæða pizzum og dressingu. mbl.is/Sæson_Line Falck

Er pizzakvöld í vændum? Prófum eitthvað nýtt og minnkum brauðát með því að útfæra pizzurnar okkar á grófar tortillakökur og hellum geggjaðri dressingu yfir – og nóg af henni. Hér má skipta út hvítkálinu með grænkáli sem er alls ekki síðra.

Pizza með kjöti, káli og geggjaðri dressingu

  • 4-6 heilhveiti tortillur
  • 1 rauðlaukur
  • 200 g cherry tómatar
  • 1 rauð papríka
  • 200 g rifinn ostur
  • 200 g nautahakk
  • Chorizo eða pepperóní
  • Jalapeno eftir smekk
  • Hvítkál

Dressing:

  • ½ dl hrein jógúrt
  • ½ dl skyr eða sýrður rjómi
  • 2 stór hvítlauksrif
  • Púrrlaukur
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 200°C.
  2. Leggið tortillurnar á bökunarpappír á bökunarplötur.
  3. Skerið laukinn í þunnar skífur. Skerið tómatana í báta og papríkuna í strimla. Skerið chorizo í skífur.
  4. Steikið hakkið.
  5. Dreifið osti yfir tortillakökurnar og toppið með tómötum, papríku, nautahakki og chorizo.
  6. Saxið jalapeno og dreifið yfir. Kryddið með salti og pipar og bakið í ofni í 8 mínútur.
  7. Skerið kálið fínt og stráið yfir nýbökuðu pizzurnar ásamt dressingunni.

Dressing:

  1. Hrærið jógúrtina saman við skyrið eða sýrðan rjóma. Merjið hvítlaukinn út í og klippið púrrlauk út í. Smakkið til með salti og pipar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert