Snúðauppskrift sem slær allar aðrar út

Nýbakaðir snúðar með fyllingu og glassúr, já takk!
Nýbakaðir snúðar með fyllingu og glassúr, já takk! mbl.is/Line Falck

Hér getur að líta snúða sem slá allar aðrar uppskriftir út af borðinu. Þessi er með dásemdar epla-marsípanfyllingu og glassúr á toppnum – hvað er hægt að biðja um meira?

Snúðauppskrift sem slær allar aðrar út

  • 75 g smjör
  • 3 dl mjólk
  • 25 g ger
  • 200 g rifið epli
  • 3 msk. sykur
  • 1 tsk. salt
  • 2 egg
  • 650 g hveiti
  • 2 epli
  • 125 g marsípan
  • 200 g smjör
  • 100 g púðursykur
  • 1 msk. kanill
  • 1 egg til penslunar
  • 150 g flórsykur

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið (75 g) við vægan hita og hellið næst yfir gerið og látið leysast upp.
  2. Setjið 200 g rifið epli út í skálina ásamt sykri, salti og eggi. Bætið hveiti út í smátt og smátt. Hnoðið þar til slétt og fínt og látið hefast í 1 tíma.
  3. Rífið niður 2 epli og marsípan með grófu hliðinni á rifjárninu og hrærið saman við 200 g af mjúku smjöri, púðursykur og kanil.
  4. Fletjið deigið út á hveitilagt borð í stærðina 40x30 cm og smyrjið epla-marsípankreminu ofan á.
  5. Rúllið deiginu varlega upp eins og rúllutertu og skerið í skífur. Leggið snúðana á bökunarpappír á bökunarplötu.
  6. Látið hefast við stofuhita í 30 mínútur.
  7. Penslið með pískuðu eggi og bakið við 200°C í 25 mínútur.
  8. Hrærið flórsykur saman við sjóðandi heitt vatn í glassúr og skreytið snúðana.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert