Rétturinn sem gerir helgina 100% betri

Alveg ótrúlega fallegt og girnilegt!
Alveg ótrúlega fallegt og girnilegt! mbl.is/Bobedre.dk_© Anders Schønnemann

Hér bjóðum við upp á hversdagsréttinn frittata. Allir litir koma hér við sögu í hollum hráefnum og útkoman er stórkostleg.

Litabomba sem bragð er af

  • 1 laukur
  • 250 g cherry tómatar
  • 200 g spínat
  • 300 g soðnar kartöflur
  • 100 g parmaskinka
  • 1 msk ólífuolía
  • 2 stór hvítlauksrif
  • 4 egg
  • 1 dl sýrður rjómi
  • Salt og pipar
  • 1 stór mozzarella kúla
  • Radísur
  • Púrrlaukur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 175°C.
  2. Skerið laukinn smátt og tómatana til helminga.
  3. Skerið kartöflurnar í skífur og skinkuna í minni bita.
  4. Hitið olíu á pönnu sem þolir að fara í ofn. Steikið lauk, hvítlauk og kartöflur í 3 mínútur og bætið þá spínatinu út á pönnuna.
  5. Takið pönnuna af hitanum og setjið tómatana út á.
  6. Pískið egg saman við sýrðan rjóma og hellið út á pönnuna og veltið öllu saman.
  7. Bætið parmaskinkunni saman við og kryddið með salti og pipar.
  8. Rífið mozzarella niður og  dreifið yfir – setjið því næst pönnuna inn í ofn og bakið í 25 mínútur þar til gyllt á lit.
  9. Skerið radísur í skífur og púrlaukinn smátt.
  10. Toppið frittata pönnurnar með radísum og púrrlauk og berið fram með góðu brauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert