Borðaði 5000 hitaeiningar á 25 mínútum

Kate Ovens er matarbloggari af guðs náð - hún elskar …
Kate Ovens er matarbloggari af guðs náð - hún elskar einnig allar áskoranir sem snúast að mat. mbl.is/metro.co.uk_Paul Davey / SWNS

Það þurfti tvær manneskjur til að leggja risa pylsu á matarborðið áður en hin fagra og magra Kate Ovens renndi henni niður á mettíma.

Hún er 25 ára gömul og er þekkt fyrir að taka hvaða áskorun sem býðst þegar kemur að því að borða mat – og hún lét þessa ekki framhjá sér fara. Kate Ovens er með 170 þúsund fylgjendur á Facebook og fær um milljón áhorf á át-áskoranirnar sínar. Kate borðaði lengstu pulsu Bretlands sem mældist um 92 cm og vegur tæp 3 kíló.

Sérstök sósa var útbúin úr svína- og nautakjöti og fylgdi með pulsunni, sem var toppuð með osti ásamt fjórum gerðum af beikoni – beikon sultu, beikon majónesi, reyktri panetta og stökkum beikon flögum.

Þessi gerð af pulsu kallast BFD og kostar um 45 pund og inniheldur 5.000 hitaeiningar sem er tvöfalt meira en ráðlagt er fyrir fullorðinn mann. Pulsan er það stór að hún er hugsuð fyrir 4 til að deila, en Kate borðaði þessa alein.

Þetta er eitt það mesta sem hún hefur borðað í áskorun og sagði í viðtali að yfirleitt þegar hún er hálfnuð með að borða þá hugsi hún með sér hvort hún nái að klára, en það gerði hún  ekki í þessu tilviki þar sem pulsan var svo rosalega góð.

Máltíðin sem Kate borðaði nú á dögunum var hvorki meira …
Máltíðin sem Kate borðaði nú á dögunum var hvorki meira né minna en 5000 kalóríur. mbl.is/metro.co.uk_Paul Davey / SWNS
mbl.is/metro.co.uk_Paul Davey / SWNS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert