Bestu veitingastaðirnir í Borgarnesi

Það hefur sennilega ekki farið fram hjá þeim sem hafa átt leið um Vesturland hversu fjölbreytt flóra er af matsölustöðum í og við Borgarnes. Fréttaritari tók saman upplýsingar um helstu staðina, vegfarendum til fróðleiks.

Þar til nýverið var veitingasala á 15 stöðum á þessu svæði en þeim hefur fækkað um einn. Kaffi Brák, kaffihúsinu í Egils Guesthouse, hefur verið lokað og samkvæmt upplýsingum fréttaritara eru eigendur að gera breytingar og ætla ekki að vera með það áfram. Þó er ekki útilokað að kaffihúsið verði opnað síðar meir.

Sætafjöldi á þeim 14 stöðum sem eftir eru dugar fyrir hátt í 1.200 manns í einu en til samanburðar má geta þess að íbúar í Borgarnesi eru um 2.000. Þegar umferðin er hvað mest fara þúsundir gesta um Borgarnes á degi hverjum og ljóst að þeir hafa úr ýmsu að velja þegar kemur að veitingum í mat og drykk.

Hótel Hafnarfjall

Skömmu áður en komið er að Borgarfjarðarbrúnni að sunnanverðu er Hótel Hafnarfjall, þar er hægt að fá sér Lavazza-kaffi sem er vinsælt, á morgnana er morgunverðarhlaðborð og á kvöldin er hægt að fá bjór. Annars er þar ekki opinn veitingastaður en hægt að panta með fyrirvara mat fyrir minni hópa. Staðurinn tekur um 40 manns í sæti.

Geirabakarí

Þegar komið er yfir brúna er fyrsti staðurinn Geirabakarí en þar er vinsælt stopp ferðamanna auk þess sem heimamenn eru fastagestir. Bakaríið tekur um 70 manns í sæti. Opnað er klukkan 7 á virkum dögum og lokað kl. 17, en frá 8 til 16 um helgar. Auk þess að bjóða upp á kaffi og smurt brauð er súpa alla daga í hádeginu. Á þriðjudögum er hægt að fá hina íslensku brauðsúpu sem er mjög vinsæl, að sögn starfsmanna.

Food Station

Þetta er nýjasti staðurinn í Borgarnesi, en hann var opnaður 24. september sl. Í hádeginu er boðið upp á rétt dagsins sem er frekar hefðbundinn heimilismatur. Einnig er boðið upp á kjötsúpu, salat af matseðli, pylsur og úrval af samlokum sem smurðar eru á staðnum. Á kvöldin er salatseðillinn sagður vinsælastur, þó að fari vel af kjötsúpu og samlokum líka. Helstu nýjungar miðað við aðra staði eru salatmatseðill, og hægt að velja ferskt grænmeti með kjúklingi, önd eða hráskinku og dressing að eigin vali. Í vetur verður opið frá kl. 9-21 og pláss er fyrir 100 manns.

Grillhúsið

Staðurinn er opinn frá kl. 11 á morgnana til 10 á kvöldin. Grillhúsið tekur 80 manns í sæti og þar eru hamborgarar eftirsóttir. Þar eru líka steikur vinsælar, s.s. Graceland (Rib Eye) og piparsteik (nautalund). Í hádeginu er boðið upp á rétti dagsins alla virka daga og er haft fyrir sið að bjóða ávallt upp á kjötrétt, fiskrétt og hamborgara dagsins. Ekki hefur verið unnt að merkja neina fækkun gesta annað en það sem árstíminn segir til um. Hægt er að hafa samband við Grillhúsið og leita tilboða fyrir hópa, afmæli eða önnur tilefni.

Olís

Á bensínstöð Olís má fá margskonar hamborgara, þar á meðal er ketóborgari auk þess að þar er mikið úrval af salötum og „Quisnos“-bátum. Staðurinn rúmar um 80 manns í sæti og þarna er opið allan sólarhringinn, og verður næst lokað á aðfangadag. Það er nóg að gera að sögn starfsmanna ,,annars væri ekki opið“, en þar er stanslaus aukning og staðurinn nýtur góðvildar heimamanna þó að allir séu að sjálfsögðu velkomnir.

N1 – Hyrnan

N1-stöðin, sem í huga heimamanna er alltaf Hyrnan, rúmar um 130 manns í sæti og hefur opið frá kl. 8 til 23.30 á kvöldin en grillið aðeins skemur. Í hádeginu má fá rétti dagsins sem eru hamborgarar og kjúklingabitar. Alltaf eru einhverjar nýjungar í boði s.s. salat-, ketó-, og vegan-diskar. Reglulega eru gerðar breytingar á smurða brauðinu, en sami kokkur hefur starfað þarna síðan á síðustu öld og þekkir vel hvað virkar og hefur fjölbreytni. Að sögn starfsmanna kom stutt tímabil þar sem gestum fækkaði lítillega í hádeginu með fjölgun nýrra staða, en föstu viðskiptavinirnir koma alltaf aftur þegar þeir eru búnir að prófa nýju staðina.

Snorri Kitchen og Bistro á B59

Á Hóteli B59 er veitingastaðurinn Snorri Kitchen og Bistro. Veitingastaðurinn er opinn í hádeginu frá 11.30 til 14 og þá er hlaðborð. Á kvöldin er opið frá 18 til 21 á fimmtudögum, föstudögum og um helgar. Þar er hefðbundinn matseðill en mælt er með því að panta borð því stundum eru haldin einkasamkvæmi og nú fara jólahlaðborðin að detta í gang, en salurinn tekur um 100 manns í sæti. Bistróið er opið alla daga frá 17 til 21, tekur um 20-30 manns, og þar fást hamborgarar, súpur og salöt.

Dússabar – Filipino mathús

Þetta er einn af eldri veitingastöðunum í Borgarnesi, opnaður árið 1997. Þar eru um 40 sæti og opið frá 18 til 23. Maturinn sem þar er í boði er blanda af íslenskum og filippseyskum réttum og eru kjúklinganúðlurnar vinsælastar. Flestir gestir eru erlendir ferðamenn og hefur aðsókn verið með svipum hætti og síðustu ár eða nokkuð stöðug.

Landnámssetrið

Staðurinn er þekktur fyrir grænmetishádegishlaðborð en annars er ofnbakaður þorskhnakki og aðrir fiskréttir. Opið er alla daga frá 10 til 21 og er pláss fyrir 120 gesti. Þau hjá Landnámssetrinu segja að þau finni aðeins fyrir fækkun gesta nú í haust og eins hafi sumarið verið lengi að komast af stað.

Englendingavík

Þessi staður dregur nafn sitt af staðsetningunni í gamla bænum í Borgarnesi. Staðurinn tekur um 60 manns í sæti og þar er opið frá kl. 11.30 til 21. Að sögn eigenda er svokallaður „Fiskifjarki“ vinsælasti rétturinn á matseðli, en annars eru fiskihlaðborð á sumrin alltaf mjög vinsæl enda Englendingavík eiginlega eini fiskistaðurinn í bænum. Gestum hefur fjölgað og það kemur á óvart hversu mikið er að gera nú á haustmánuðum. Sömu aðilar reka Hótel Glym í Hvalfjarðarsveit og þar er hefðbundinn matseðill fyrir hótelgesti og aðra gesti.

Blómasetrið – Kaffi kyrrð

Um er að ræða vinsælan áningarstað í gamla bænum. Þar er opið frá 10 til 19 alla daga. Auk þess að bjóða upp á kaffi og kökur, eru þar léttar veitingar og súpa. Þar hefur gestum fjölgað og sumarið var mjög gott, að sögn eigenda.

Hótel Borgarnes

Hótelið er í næsta nágrenni við Blómasetrið en þar er opinn veitingastaður á kvöldin frá kl. 18 til 21 með sæti fyrir um 60-70 manns. Flestir matargestir eru hótelgestir en opið er fyrir hvern sem er alla daga og hægt að panta mat af matseðli.

La Colina

Þegar ekið er í norður frá Borgarnesi blasir þessi veitingastaður við á hægri hönd, í rauðklæddu timburhúsi. Þar eru seldar eldbakaðar pitsur og opið alla daga frá kl. 12 til 21. Lokað verður í 4-6 vikur frá 22. desember nk. því þá taka eigendur frí. Sæti eru fyrir um 75 manns en staðurinn er vel sóttur af ferðamönnum og sumarhúsaeigendum í Borgarfirði, og sumarið sló öll aðsóknarmet, að sögn eigenda. Sjávarréttapitsa, ruccola og parmaskinkupitsa auk Calzone hálfmána eru vinsælustu réttirnir af matseðli og að sögn eigenda er líka hægt að panta fyrir litla hópa og þá er t.d. hægt að fá lasagna og salat. Eigendur eru frá Kólumbíu og hafa rekið staðinn í þrjú og hálft ár.

Hótel Hamar

Rétt norðan við Borgarnes blasir golfvöllurinn við og Hótel Hamar fyrir miðju. Veitingastaður hótelsins er opinn frá kl. 12 til 21 og tekur 180 manns í sæti.

Að sögn starfsmanna er vinsælasti rétturinn andalæri með graskeri, sykurbaunum, chili og appelsínugljáa, en annars eru nýju grænmetisréttir hótelsins sagðir eftirsóttir. Í hádeginu eru gjarnan tilboð á tveggja og þriggja rétta máltíðum en ekki sérstakur hádegismatseðill. Þau finna fyrir fjölgun gesta og haustið hefur komið vel út.

Að ofantöldu er ljóst að enginn þarf að fara svangur fram hjá Borgarnesi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert