Eldiviðarkubbar sem ilma eins og KFC-kjúklingur

Ljósmynd/KFC

Ef þetta er ekki það al-snjallasta sem heyrst hefur lengi. Í stað þess að brenna greni í arninum og rembast við að fá einhvern jólafnyk í húsið er nú hægt að panta eldiviðarkubba frá KFC sem ilma eins og kjúklingur.

Þetta er ekki fölsk frétt og það er fullt af fólki sem er að kaupa þessa snilld. Ég renndi við uppi á KFC í Mosó fyrr í dag og þar könnuðust menn ekkert við að vera komnir í eldiviðarbransann þannig að þetta er þá eingöngu til sölu í Bandaríkjunum.

Eftir nánari eftirgrennslan komst ég að því að hægt er að kaupa þessa snilld HÉR.

Ljósmynd/KFC
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert