Brúðarmyndir eins og þú hefur aldrei séð þær

Það jafnast ekkert á við góða melónu en þessi uppstilling …
Það jafnast ekkert á við góða melónu en þessi uppstilling á brúðkaupsdaginn – við vitum ekki alveg.... mbl.is/Boredpanda.com

Það eru margar leiðir til að fagna ástinni, og hefðir í kringum stóra daginn eru misjafnar úti um allan heim. Hér eru nokkrar stórskemmtilegar myndir af fólki sem hefur farið óhefðbundnar leiðir í myndatökum.

Hér sjáum við brúðhjón kasta ferskum kjúklingum fram af brú …
Hér sjáum við brúðhjón kasta ferskum kjúklingum fram af brú – en það á að hreinsa hjónabandið af öllum illum öndum. mbl.is/Pinterest
Það er yfirleitt brúðurin sem stelur senunni á stóra deginum. …
Það er yfirleitt brúðurin sem stelur senunni á stóra deginum. Þessi brúður sá algjörlega til þess að vera miðpunktur athyglinnar þar sem brúðartertan var brúðurinn sjálf í kjólnum, með hanskana og allt annað tilheyrandi skraut. mbl.is/Twitter
Þetta par kynntist í stórmarkaði og fannst tilvalið að taka …
Þetta par kynntist í stórmarkaði og fannst tilvalið að taka brúðarmyndirnar innan um pakkamat og frábær tilboð sem virtust vera í gangi í versluninni. mbl.is/Daily Mail
Skyndibiti er vinsæll út um allan heim, en þessum brúðhjónum …
Skyndibiti er vinsæll út um allan heim, en þessum brúðhjónum varð heitasta óskin uppfyllt eru þau héldu upp á daginn með McDonalds-þema í veislunni. Og þá var öllu tjaldað til. Hamborgarar, franskar og gos eins og þú gast í þig látið og trúðurinn sjálfur mætti á staðinn. mbl.is/Eater
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert