Grísk spínat- og fetaostabaka í fílódeigi með jógúrtsósu og mozzarella-salati

Ljósmynd/María Gomez

Hér erum við með gríðarlega metnaðarfulla og flotta uppskrift sem er saga á bak við. María Gomez á Paz.is var mikill aðdáandi samnefndrar böku og dó ekki ráðalaus þegar hún hætti að versla þar.

„Spanakopíta er grísk baka með spínati og fetaosti sem ég bara get ekki lýst hversu góð hún er. Ég kynntist henni fyrst þegar Costco kom til landsins en þar var hægt að fá hana frosna. Ég viðurkenni að fyrst til að byrja með var ég ekkert svakalega hrifin, en þá vissi ég ekki alveg hvernig ætti að borða hana. Svo ákvað ég að prófa að bera hana fram með hunangi, jógúrtsósu og mozzarella-salati. Og vitir menn þá bara gerðust töfrar og það var ekki aftur snúið. Ég fór í fýlu út í Costco þegar verðið hjá þeim hækkaði og ákvað að fá mér ekki aftur aðildarkort hjá þeim. En mikið langaði mig alltaf í þessa böku. Ég dó því ekki ráðalaus og ákvað að gera hana bara sjálf, og það tókst líka svona glimrandi vel. Ég held að mín sé betri en þessi í Costco.

Miðjarðahafsmataræði á ansi vel við mig enda ættuð sjálf frá Spáni. Auk þess er mataræðið þar afar hollt og þeir sem tileinka sér það eiga það til að lifa lengur. Ég mæli með að þið prófið, þrátt fyrir að uppskriftin geti kannski virtst flókin við fyrstu sýn. Ég lofa að þetta er ekkert mikið mál og þegar þið hafið prófað einu sinni munuð þið pottþétt prófa aftur. Það er samt algjör skylda að hafa þetta allt saman sem máltíð, sósuna, bökuna og salatið og svo setja hunang út á. Eitt og sér er þetta ekki nærri eins gott.“

Þar sem það er smá erfitt að útskýra hvernig á að búa til spíralinn eða lagið á bökunni þá er hér myndband sem sýnir hvernig á að rúlla þessu upp. Byrjið að horfa á mínútu 2:50.

Spanakopita-bakan

  • 600 gr. ferskt spínat (veit þetta virkar svakalega mikið en við eldun verður þetta að engu)
  • 120 gr. púrrulaukur 
  • 200 gr. fetaostakubbur 
  • 2 geiralausir hvítlaukar eða 8 hvítlauksrif
  • 2 stór egg 
  • 3 msk. ólífuolía 
  • 1 tsk. timian 
  • safi úr 1/2 sítrónu 
  • salt og pipar 
  • 1 pakki af filodeigi 
  • Hunang

Gúrku-jógúrtsósa

  • 350 gr. grísk jógúrt 
  • 1 msk. agave-síróp 
  • 1/2 gúrka 
  • 1-2 tsk. gróft salt 
  • pipar 

Mozzarella-salat

  • 1 box piccolo tómatar 
  • 1 avókadó 
  • 10 mozzarella-kúlur litlar 
  • Hnefi af ferskri basiliku 
  • 3 msk. ólífuolía 
  • 1/2 tsk. borðsalt eða 1 tsk. gróft salt (smakkið bara til, ég vil alltaf mikið saltað)
  • pipar 

Aðferð

Spanakopita

  1. Byrjið á að skola spínatið vel og saltið það svo létt yfir, ég set það á eldhúspappír ofan á ofnskúffur
  2. Skerið næst púrrulaukinn og merjið hvítlaukinn 
  3. Setjið næst spínatið inn í klút eða hreint stykki og vindið allt vatn úr því, það má alveg kremjast, en vindið eins mikið úr því og þið getið
  4. Hitið næst olíu á stórri pönnu 
  5. Steikið laukana við vægan hita og passið að þeir brenni ekki, eiga bara að mýkjast 
  6. Setjið svo spínatið á pönnuna og saltið smá og kryddið með dillinu og piprið örlítið
  7. Látið sjóða eins og í 15 mín. eða þar til spínatið er orðið meira en helmingi minna um sig
  8. Nú gæti verið komið svolítill aukavökvi á pönnuna frá spínatinu, þá er gott að setja lokið af pönnunni yfir með smá opi við endann og hella safanum í vaskinn, eins miklu og þið náið
  9. Þegar það er búið kreistið þá safa úr 1/2 sítrónu yfir og setjið eggin út á og hrærið
  10. Hér þarf ekki að sjóða fyllinguna neitt lengur, heldur takið af hellunni og myljið fetaostakubbinn yfir allt og hrærið saman, alls ekki setja í matvinnsluvél, þetta á að vera gróft
  11. Takið svo kringlótt eldfast mót og smyrjið það með olíu 
  12. Nú er svo að taka fílódeigið sem getur verið smá hausverkur en óttist ekki ég lofa að þetta mun takast
  13. skoðið myndbandið sem ég set inn í hlekk hér fyrir ofan en á mínutu 2:50 byrjar hann að setja fyllinguna í deigið og mæli ég með að þið gerið það alveg eins. Ég reyndar er með spreybrúsa með vatni og spreyja yfir hverja örk áður en ég set fyllinguna, ekki nota olíu
  14. Rúllið svo upp og raðið á eldfasta mótið eins og sýnt er í videoinu
  15. Ef það koma sprungur í deigið eða það rifnar þá er það allt í lagi, raðið því bara upp og pælið ekkert í því þótt það springi smá eða rifni og ykkur finnst eins og allt sé ónýtt
  16. Penslið svo með ólífuolíu þegar bakan er alveg heil 
  17. Bakið við 200 C° blástur í 25 mínútur eða þar til bakan er orðin fallega gyllt og stökk

Jógúrtsósan 

  1. Meðan bakan er í ofninum gerið þá salatið og sósuna 
  2. Hrærið jógúrtina upp og setjið salt, pipar og agave-síróp út í 
  3. Raspið svo hýðið af hálfri gúrku út í og bara rétt innan við hýðið svo að sósan verði ekki blaut. Hún á að vera þykk
  4. Hrærið svo vel saman 

Mozzarella-salat

  1. Skerið tómatana smátt og avókadóið líka 
  2. Saxið basillaufin og skerið mozzarella-kúlurnar í skífur 
  3. Blandið öllu saman í skál og setjið olíu, salt og pipar út á og hrærið vel saman 

Framsetning

  1. Berið fram með sósunni og salatinu 
  2. Setjið svo hunang út á bökuna þegar þið fáið ykkur á diskinn, en þannig er hún langbest
  3. Mæli með að þið hafið þetta allt saman því sem máltíð er þetta alveg geggjað 

Punktar

Ekki láta lengdina á aðferðarlistanum hræða ykkur, þetta er í raun mjög einfalt að gera. Fyrst munuð þið líklega halda að það sé allt of mikið spínat í uppskriftinni en það mun minnka mjög mikið við eldun. Hvað filodeigið varðar þá er það fljótt að þorna og því best að hafa það allan tímann undir stykki meðan unnið er með það. Þess vegna líka sprauta ég á það vatni áður en ég set fyllinguna inn í. Það mun rifna og koma sprungur í það en ekki láta það hræða ykkur, notið það bara þannig og rúllið því upp þó að komi göt og sprungur það mun ekki koma að sök.

Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert