MS svarar kalli ketóaðdáenda

Lágkolvetna- og ketómataræði hefur verið sérstaklega vinsælt á Íslandi síðustu misseri og þar leika ýmsar tegundir af osti stórt hlutverk því hann er alla jafna án kolvetna. Einn af þeim ostum sem eru í uppáhaldi hjá stórum hluta þessa hóps er Óðals-cheddar og því gaman að segja frá því að MS hefur svarað kalli neytenda með því að bjóða nú upp á rifinn cheddarost í 200 g pokum.

Í hverjum 100 g af rifnum cheddar eru 34 g fita, 23 g prótín og engin kolvetni. Rifinn cheddarostur hentar fullkomlega í alls kyns matargerð og má þar nefna heimatilbúið ostasnakk, eggjakökur, ketópítsubotna og dásamlegar cheddarvöfflur.

Cheddarvöfflur með avókadó og beikoni

Uppskrift fyrir eina vöfflu:

  • 2 egg
  • 50 g rifinn cheddarostur
  • chili
  • salt (eða salt og chiliflögur eftir smekk)

Blandið saman og bakið í vöfflujárni. Ofan á vöffluna er svo gott að setja avókadó, stökkt beikon, chili, salt og ólífuolíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert