Ómótstæðilegt tortellini með kjúklingi og sveppum

Ljósmynd/Linda Ben

Hér er dásemdaruppskrift frá Lindu Ben. sem ætti ekki að svíkja neinn. Löðrandi í osti og fíneríi, algjörlega fullkomið á degi sem þessum.

Tortellini með kjúklingi og sveppum í hvítlauksostarjómasósu

  • 350 g tortellini fyllt með osti
  • 3 kjúklingabringur
  • ólífuolía
  • salt og pipar
  • ½ laukur
  • 250 g sveppir
  • 50 g smjör
  • 3 hvítlauksgeirar
  • ½ l rjómi
  • kryddostur með hvítlauk
  • ferskt basil
  • parmesanostur

Aðferð:

  1. Sjóðið tortellini samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
  2. Skerið kjúklingabringurnar smátt og steikið upp úr ólífuolíu og salti og pipar þar til eldað í gegn. Takið kjúklinginn af pönnunni en ekki þrífa pönnuna.
  3. Skerið laukinn smátt, bætið út á pönnuna og steikið. Skerið sveppina frekar gróft og bætið á pönnuna ásamt smjöri. Steikið þar til mjúkir í gegn. Skerið hvítlaukinn smátt eða pressið með hvítlaukspressu út á pönnuna, steikið létt og bætið svo rjómanum strax út á. Leyfið að malla í smástund við vægan hita.
  4. Rífið kryddostinn niður og bætið út á pönnuna og látið hann bráðna saman við. Bætið kjúklingnum aftur út á pönnuna. Smakkið til með salti og pipar.
  5. Setjið pastað í fallegt ílát, hellið sósunni yfir og berið fram með fersku basil og parmesan.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert