Salsa-sósan sem var valin sú besta

Ljósmynd/Green Mountain Gringo

Það er alltaf jafn skemmtilegt þegar að hópur sérfræðinga tekur sig saman og velur hvaða vara er best. Það sparar okkur hinum — sem vart teljast sérfræðingar — umstalsverða vinnu og vonbrigði. Í grein í Washington Post sem við rákumst á var hópur sérfræðinga fenginn til að bragðgreina og dæma 14 þekktar tegundir af salsa-sósum. Einkunnagjöfin var frá 21 upp í 61.

Sú sósa sem bar sigur úr býtum er Green Mountain Gringo-sósan sem þótti bæði bragðmikil og vel krydduð.

Góðu fréttirnar hér eru að það er hægt að fá þessa sósu hérlendis en við höfum öruggar heimildir fyrir því að hún sé til í Hagkaup.

Grein Washington Post má lesa í heild sinni HÉR.

Sósan sem valin var sú besta.
Sósan sem valin var sú besta.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert